Grænland varð snemma eitt af hryggjarstykkjum Flugfélagsins - Sjónvarp - Vísir
Íslensku flugfélögin hófu Grænlandsflug fyrir árið 1950, bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir. Framan af sinntu sinntu þau einkum verkefnum fyrir dönsk stjórnvöld, bandaríska herinn og þjónuðu vísindaleiðöngrum. Í þættinum Flugþjóðin á Sýn segir flugsögusérfræðingurinn Pétur P. Johnson að Grænland hafi snemma orðið eitt af hryggjarstykkjum í rekstri Flugfélags Íslands. Hér má sjá fjögurra mínútna myndskeið.