„Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ - Vísir
„Nú getum við horft til baka með ótrúlega dýrmætar minningar og verið endalaust þakklát fyrir þennan dag,“ segir Sædís Lea Lúðvíksdóttir sem giftist ástinni sinni Henriki Bjarnasyni við draumkennda athöfn í kastala í Frakklandi á dögunum. Hjónin eru sammála um að þetta hafi án alls efa verið skemmtilegasta upplifun lífs þeirra.