Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið - Vísir
Karlráðherrar ríkisstjórnarinnar brugðu á leik á árshátíð Stjórnarráðsins sem fram fer í kvöld og klæddu sig upp í fangaklæðnað með tilvísun í frægu strákasveitina Iceguys. Ráðherrarnir bættu um betur og tóku lagið Gemmér gemmér upp á sviði sem umrædd hljómsveit gerði frægt og létu ekki sitt eftir liggja í sviðshreyfingum, samkvæmt heimildum fréttastofu.