Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína - Vísir
Talsmaður Wolt-sendla fordæmir hótanir í garð starfsfólks fyrirtækisins og býður fram aðstoð sína. Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir búið að tilkynna hótanirnar til lögreglu en þær hafi allar verið nafnlausar. Þá hafi starfsfólk heimsendingarþjónustunnar einnig orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra sendla. Sendlarnir boða stofnun samtaka og hyggjast að óbreyttu efna til verkfalls.