Tottenham að gera enn ein kaupin? | DV - Frjáls og óháður miðill
Tottenham gæti verið að kaupa enn einn risastóra bitann í sumar en samkvæmt ítölskum miðlum hefur stjörnuumboðsmaðurinn Jorge Mendes boðið félaginu að kaupa Rafael Leao frá AC Milan.Leao er sagður vilja yfirgefa Milan og gæti verið fáanlegur fyrir um 50 milljónir punda í sumar, eða á láni með kaupskyldu. Hann hefur verið lykilmaður ítalska stórliðsins undanfarin ár og einnig verið orðaður við Manchester United í sumar.