Ég bý í samfélagi sem þótti ekki tiltökumál að keyra fram af brúninni í upphafi þessarar aldar. Samfélagi þar sem þjóðin öll fór á fyllirí í eltingaleik í kringum gullkálfinn og ekki var um annað talað í fermingarveislum en hvort þú hefðir keypt hlutabréf í þessu eða hinu fyrirtækinu. Allur almenningur var með dollaramerki í augum. Fyrirtækin í Kauphöll hækkuðu öll í verði um tugi prósenta á ári. Rekstur þeirra skipti engu máli – þau hækkuðu bara í verði sjálfvirkt. Og karlarnir voru í því að taka út auðinn sem þannig skapaðist – af því að fyrirtækin hækkuðu svo mikið í verði án þess að nokkur raunveruleg verðmætasköpun hefði átt sér stað.
Ähnliche Seiten
Ísland í dag - Regína Ósk og Svenni Þór með ódýra heimasmíðaða útisánu á pallinum - Sjónvarp - Vísir