Arnar býst við tilfinningaríkri stund á Laugardalsvelli - Vísir
„Hjörtur kemur inn og það eru vafalítið margir sem spyrja, bíddu, Hjörtur var ekki í hópnum og allt í einu kemur hann í byrjunarlið. En ég hafði alltaf hugsað mér að Aron Einar yrði svona klóser í þessum glugga, kæmi inn í leikjum með sinni kunnáttu, reynslu og visku og mér fannst engin ástæða til að breyta því,“ segir Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari sem gerir tvær breytingar á byrjunarliði íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Lúxemborg í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli klukkan fimm í dag.