Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun - Vísir
Daniel Maldini, sonur ítölsku goðsagnarinnar Paulo Maldini, lenti í árekstri morguninn eftir að hafa skorað sigurmarkið fyrir Cagliari gegn Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni fyrr í mánuðinum. Hann mældist með áfengi í blóðinu og var sviptur ökuréttindum á staðnum.