„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
Söng- og fjölmiðlakonan Kelly Clarkson stendur í stríði við galdrabúð í Brooklyn eftir að henni fannst starfsmaður gefa í skyn að hún ætti ekki efni á vélrænum fugli í búðinni. Eigendur búðarinnar sögðu í yfirlýsingu að fuglinn væri varanleg útsetning og ekki til sölu en annar sambærilegur fugl væri falur. Það væri miður að Clarkson hefði upplifað sig óvelkomna og enn leiðinlegra að aðdáendur hennar hefðu ráðist á búðina á samfélagsmiðlum.