Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi - Vísir
Karlmaður um þrítugt hefur játað að hafa brotið rúður í fjölda bíla aðfaranótt mánudags á Seltjarnarnesi. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að málið sé nú upplýst og rannsókn lokið.