Skuggamansal á Íslandi - Vísir
Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals og ofbeldis hér á landi. Ég hef því miður kynnst þessum málum í stöfum mínum sem lögmaður og ítrekað fengið inn á mitt borð viðkvæm mál þar sem konur í viðkvæmri stöðu vegna fötlunar, alvarlegrar neyslu eða erfiðra félagslegra aðstæðna eru skipulega nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning.