Framlenging og dramatík í Grindavík - Þróttur vann Víking | DV - Frjáls og óháður miðill
Grindavík/Njarðvík og Þróttur eru komin í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir sigra í kvöld.Þróttur vann Víking Reykjavíkurslag fyrr í kvöld, þar sem María Eva Eyjólfsdóttir gerði eina markið seint í leiknum.Grindavík/Njarðvík tók á móti Stjörnunni og var betri aðilinn í fyrri hálfleik. Það var þó markalaust eftir hann og gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af krafti. Kom Hrefna Jónsdóttir þeim yfir þegar hann var aðeins nokkurra mínútna gamall.