Framleiðni stendur í stað og það „mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræður“ - Innherji
Hagfræðingar segja að það sé áhyggjuefni að framleiðni á mann hafi ekki vaxið undanfarin ár og benda á að sú fjölgun starfa á vinnumarkaði sem hafi orðið sé að stórum hluta lágframleiðnistörf. Þessi staða mun hafa áhrif í komandi kjaraviðræðum, að sögn aðalhagfræðings Samtaka iðnaðarins, sem varar við því að með sama framhaldi verði ekki innstæða fyrir auknum lífsgæðum.