Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu - Vísir
Menningarhátíðin ListaVestrið verður haldin í fimmta skiptið í ár og fer fram dagana 11. til 19. júlí á Flateyri. Fimmtán listamenn taka þátt í hátíðinni í ár og má þar nefna hjónin Huldu Hákon og Jón Óskar, Einar Örn Benediktsson og svo sýna börn Jóns Sigurpálssonar heitins verk hans.