Fara fram á það að FIFA banni alla fána tengda baráttu hinsegin fólks | DV - Frjáls og óháður miðill
Íranska knattspyrnusambandið hefur farið fram á það við FIFA að regnbogatákn og önnur tákn tengd réttindabaráttu hinsegin fólks verði bönnuð á Heimsmeistaramótsleik Írans og Egyptalands í Seattle.Leikurinn fer fram 26. júní og hefur skipulagsnefnd HM í Seattle kynnt daginn sem sérstakan „Pride Match Day“ í tengslum við Hinsegin daga. Ýmsir viðburðir verða haldnir í borginni af utanaðkomandi samtökum samhliða leiknum.