Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? - Vísir
Sem afskekkt eyríki í Norður-Atlandshafi er Ísland óhjákvæmilega háð flugsamgöngum. Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð, brúin sem tengir samfélag okkar og atvinnulíf við umheiminn. Þeir sem búa yfir valdi til að teppa þessa lífæð fara því með mikil völd.