Maria notaði Wegovy í nokkra mánuði – Nú er hún heilasködduð | DV - Frjáls og óháður miðill
Þegar heilsunni fór að hraka ákvað hún að byrja að nota megrunarlyfið Wegovy til að léttast. En nokkurra mánaða notkun á Wegovy gjörbreytti lífi 28 ára danskrar konu algjörlega og það til hins verra.Í umfjöllun TV2 um málið kemur fram að Maria Sommer-Kosac hafi byrjað að nota Wegovy í maí 2024 í samráði við lækninn sinn. Í byrjun upplifði hún þekktar aukaverkanir á borð við ógleði og uppköst og því hringdu viðvörunarbjöllurnar ekki strax.