Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street - Vísir
Nokkrum mánuðum eftir að Chirayu Rana hætti hjá JPMorgan, höfðaði hann mál gegn fyrirtækinu og fyrrverandi samstarfskonu sinni sem hann sakaði um kynferðislega áreitni og kynferðisbrot og sagði hana hafa gert sig að kynlífsþræl. Ásakanir hans þóttu nokkuð sjokkerandi og hafa fregnir af málinu dreifst um internetið eins og eldur um sinu, með tilheyrandi rangfærslum.