Hættur störfum í Sádí Arabíu | DV - Frjáls og óháður miðill
Michael Emenalo hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Sádiarabíudeildarinnar eftir þrjú ár í starfi.Emenalo, sem er fyrrverandi landsliðsmaður Nígeríu, tók við embættinu árið 2023 þegar deildin hóf metnaðarfulla uppbyggingu sína og lék lykilhlutverk í að laða fjölmargar alþjóðlegar knattspyrnustjörnur til Sádi-Arabíu.Í yfirlýsingu sagði Emenalo að það sem hefði heillað hann mest við verkefnið væri metnaðurinn sem lagt var upp með. Hann væri stoltur af þeim grunni sem lagður hefði verið til að styrkja deildina og skapa henni skýra framtíðarsýn.